Triotech Snjallhús

Triotech IoT monitoring

Snjalli Húsvörðurinn

Einföld vöktun fyrir hús, frystiklefa, geymslur og aðra staði þar sem hitastig, raki, rafmagn og viðvaranir skipta máli.

Kerfið notar eigin IoT tæki sem senda stöðu og viðvaranir til þjóns Triotech. Viðskiptavinir skrá sig inn á vefinn og sjá tækin sín í skýrri tækjaskrá.

Snjalli Húsvörðurinn er hluti af Snjallhús lausnunum frá Triotech. Kerfið er byggt fyrir íslenska viðskiptavini og fyrsta útgáfan leggur áherslu á áreiðanlega yfirsýn, viðvaranir og einfaldan rekstur.

Tækjavöktun

Hitastig, raki, rafmagn, auka aflvaki og síðasta tenging tækis.

Viðvaranir

Viðvörunarskrá, rauðar línur í tækjaskrá og samantekt í tölvupósti.

Fyrirtækjaþjónusta

Aðgangur er bundinn við viðskiptavini og hver notandi sér aðeins sín tæki.